Framkvæmdir frá stofnun fyrirtækisins
Framkvæmdir frá stofnun fyrirtækisins.
|
2007 -
Nesjahverfi - gatnagerð og lagnir
|
|
Lagning Krossanesbrautar milli Brimness og Óðinsness og þaðan að Ægisnesi. Lengd gatna er 550 metrar og helstu magntölur eru: uppúrtekt og fyllling í götur samtals 20.000 rúmmetrar, frárennslislagnir 1600 metrar og vatnslagnir 650 metrar. Framkvæmdum er að mestu lokið nema yfirborðsfrágangur. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2007 -
Miðhúsabraut
|
|
Nýbygging Miðhúsabrautar og tenging hennar við Kjarnagötu, Brálund og Súluveg. Inni í verkinu er; jarðvinna 75.000 rúmmetrar þar af sprengingar og efnisvinnsla 12.000 rúmmetrar og gerð hljóðmanar við Holtateig, undirganga, götulýsing og lagnir. Gerð undirganga og útlögn fyllinga burðarlaga skal lokið um áramót og verkinu að fullu fyrir 15. júní 2008. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2007 -
Naustahverfi 5
|
|
Nýbygging gatna og stíga og lagnir veitustofnana í fimmta áfanga Naustahverfis auk þess að regnvatnslögn austan Grenilundar var framlengd um 260 metra til suðurs yfir fyrirhugaða Miðhúsabraut að Kjarnagötu. Verkið hófst í maí og er nú að fullu lokið lagningu Ásatúns, Hamratúns, Fossatúns og Baugatúns, en vegna sigs í götustæði syðst í Heiðartúni og í Kjarnagötu er beðið með að ljúka framkvæmdum. Efnisflutningar í verkinu eru u.þ.b. 65.000 rúmmetrar og áætlað er að leggja 3 km af frárennslislögnum. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2007 -
Glerártorg Jarðvinna
|
|
Verkinu lauk í ágúst sl. en þá hafði verið skipt um jarðveg í grunni og undir bílastæðum fyrirhugaðrar verslunarmiðstöðvar, auk þess sem grafið var fyrir nýju dekkjaverkstæði Höldurs inn í brekkuna austan við gamla Hekluhúsið. Í ljós kom burðarlítið leirlag undir suðurhluta verslunarmiðstöðvarinnar og þurfti af þeim sökum að hausetja u.þ.b. 50.000 rúmmetra af möl sem var ofan á af leirnum sem síðan var fjarlægður allt niður á 14 m. dýpi. Umfang verksins jókst verulega af þessum sökum og námu efnisflutningar í verkinu á annað hundrað þúsund rúmmetrum. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2007 -
Lagnir frá yfirföllum
|
|
Samið var við G.V.Gröfur á grundvelli frávikstilboðs. Frávikið miðaði við að verkið yrði unnið á tímabilinu 1.jan til 31 maí 2007. Verkið felur í sér að leggja frárennslislagnir frá yfirföllum við Hlíðarbraut og í Sandgerðisbót að þeim stað sem fyrirhuguð skólphreinsistöð mun rísa á fyllingu yst í Sandgerðisbót. Framkvæmdir hófust nú í byrjun mars og var að mestu lokið í júlí en fresta þurfti verklokum þar sem yfirfallahúsin voru ekki tilbúin. Reiknað er að verkinu verði að fullu lokið í nóvember. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2007 -
Reykjaveita Illugastaðir - Grenivík
|
|
Í gær var lokið við síðustu pípusuðu í Reykjaveitu sem er 47 km niðurgrafin stofnlögn hitaveitu milli Illugastaða í Fnjóskadal og Grenivíkur. 5,3 km. af 150 mm einangruðu stálröri var lagt milli Illugastaða og Steinkirkju, en þaðan var lögð 125 mm lögn til Grenivíkur. Útlögn röra og pípusuða hófst 4. desember 2006, en vinna gekk rólega vegna veðurs og snjóa fram undir áramót. Vinna við skurðgröft hófst eftir áramót og 15. mars var búið að leggja 13 km. Gert var hlé á framkvæmdum í júní og júlí, en þá var búið að leggja lögnina að Þverá tæplega 30 km leið. Eftir er lítlsháttar yfirborðsfrágangur skurðstæðis sem verður lokið við á næstu dögum.
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
2006 -
Glerártorg 2006-2007 niðurrif
|
|
Niðurrif og förgun húsa á væntanlegri byggingalóð vegna stækkunar Glerártorgs. Gólflötur húsanna sem rífa á er u.þ.b.13.000 m2 og ætla mál að rúmmál efnis sem flytja þarf burt sé 20-25 þúsund rúmmetrar. Niðurbrot hófst nú í dag 11. nóvember, byrjað var á að brjóta niður þann hluta sem skinnasaumastofa sambandsins var lengst af. 30 nóvember var búið u.þ.b. 20% af verkinu og þegar þetta er skrifað 17.desember er lokið við að rifa og fjaralægja húsin sem skinnasaumastofan, skógerðin Iðunn og gamla sútunin voru til húsa, einnig er lokið við hluta Gefjunar nánar tiltekið vinnslusalinn að undanskilinni gólfplötu og sökklum. Lokið er við um það bil 34% verksins. Gert var hlé á vinnu við verkið 17 des s.l. vinna hófst síðan aftur 2.jan í dag 7 jan er búið að rífa ketilhúsið og umbúðalagerinn þar sem rafmagnsverkstæðið Púlsinn var nú síðast. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2006 -
Nesjahverfi
|
|
Verkið felur í sér að ljúka gerð Baldursnes, Goðanes og hluta Óðinsnes ásamt því að leggja tilheyrandi frárenslis og vatnslagnir. Með til komu þessa gatna mun opnast leið frá Býkó niður í iðnaðarhverfið sem er í byggingu í Nesjahverfi. Fyrri hluta verksins mun ljúka í byrjun nóvember en áætluð verklok verksins í heild er 1. apríl 2007 Framkvæmdum lauk 15.mars 2007 |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2006 -
Nýbygging fyrir starfsemi G.V Grafa
|
|
Framkvæmdir hófust 17 ágúst 2006. Fjarlægja þurfti um það bil 6000 rúmmetra af mold úr grunni og fylla í með svipuðu magni af fyllingarefni. Vinnu við jarðvegskiptin lauk 2.sept 2006. 25. október er lokið við uppsteypu sökkla og fyllingu að sökklum ásamt lögnum í grunn. Sunnudaginn 12. nóvember kom stálgrindin í húsið. Lokið var við að reisa og loka húsinu fyrir 20 desember 2006. Frá áramótum hefur verið unnið við að innrétta og að frágangi innan húss sem lauk nú um miðjan apríl. Helgina 14-15 apríl 2007 var flutt inn í húsnæðið. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2005-2006 -
Naustahverfi 3. áfangi
|
|
Gatnagerð og lagnir í Naustahverfi á Akureyri. Verkkaupi Akureyrarbær Norðurorka Síminn og Tengir Helstu magn tölur Gröftur 46.500m3 Fráveitulagnir 5600m Sprengingar 1.500m3 Fyllingar og burðarlög 37.000m3 Vatnslagnir 3.000m Hitaveitulagnir 3.500m Raflagnir 9.700m Lagnir fyrir símann 33.400m ídrtáttarör fyrir Tengir 10.000m. Framkvæmdum lauk í ágúst 2006
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
2005 -
Hitaveitulagnir á Eskifirði, samið um framhaldsverk án útboðs
|
|
Upphæð: 89.000.000 ISK |
|
Skrifað var undir verksamning í byrjun júní við Fjarðabyggð sem felur í sér framhald framkvæmda við lagningu hitaveitulagna á Eskifirði. Verkið felur í sér að leggja dreyfikerfi hitaveitu og endurnýun vatnslagna í götur og heimtaugar inn í 230 hús. Heildar lengd skurða er áætluð 11.400m, vatnslagna 7.600m, hitaveitulagna 11.400m. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2004-2005 -
Hitaveitulagnir á Eskifirði
|
|
Upphæð: 86.000.000 ISK |
|
Verkið var unnið á tímabilinu október 2004 til ágúst 2005. Lögð var aðveitulögn frá borholu um 2 km innan við bæinn ásamt lögnum að miðlunargeimi. Einnig var lögð stofnlögn eftir strandgötu ásamt heimtaugum í 105 hús. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
2000 -
Breiðbandslagnir á Akureyri fyrir Símann
|
|
Upphæð: 51.000.000 ISK |
|
Verkið fólst í því að leggja breiðbandslagnir fyrir Landsímann í Lundahverfi og hluta Mýrahverfis á Akureyri ásamt stofnstrengjum að símstöð í Hafnarstræti. Verktími maí til október 2000. Helstu magntölur: Skurðir 9.523m strengir lagðir í skurði 80.218m rör lögð í skurði 13.486m inntök inn í hús 410 stk.
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
1999 -
Dreifikerfi hitaveitu í Stykkishólmi
|
|
Upphæð: 47.000.000 ISK |
|
Árið 1999 tók fyrirtækið að sér vinnu við lagningu hitaveitulagna í Stykkishólmi fyrir Borgarverk hf sem tekið hafði að sér að leggja dreyfikerfi hitaveitu í allan bæinn. Hluti G.V Grafa í verkinu var sem hér segir. Skurðir 7.490m hitaveitulagnir 11.384m losun klappar í skurðum 1.030m inntök í hús 162 stk Rör fyrir LÍ 5.500m strengir LÍ 19.300m. Við verkið unnu 10-12 menn á tímabilinu frá 27 maí til 30 sept 1999. Óhætt er að segja að verkið gekk mjög vel. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Sæluhús í Búðargili
|
|
Gatnagerð, lagnir og húsgrunnar. Aðalhlutar verksins eru að leggja 200 m götu ásamt og 240 m. af stofnlögnum fráveitu ásamt greftri og fyllingu í 10 húsgrunna. Einnig voru lagðar lagnir Norðurorku fyrir rafmagn, heitt og kalt vatn ásamt og götulýsingu komið fyrir. |
|
Upplýsingar og myndir |
Framkvæmdir
Hitaveita í Eyjafjarðarsveit |
|
GV Gröfur áttu lægsta tilboð í lagningu hitaveitu Norðurorku frá Botni að Finnastöðum og Grund í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða lögn 65 mm foreinangraða stálpípu auk heimæða úr pexi samtals rúmir 10 km. Tilboðfjárhæð er tæpar 30 milljónir og skal röralögn skal lokið í haust en verkinu að fullu næsta vor.
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
Endurbygging Þingvallastrætis |
|
GV var lægstbjóðandi í framkvæmdir við endurbyggingu neðsta hluta Þingvallastrætis og eru framkvæmdir hafnar. Gangstéttin frá Myndlistaskólanum í Kaupvangsstræti og upp fyrir Þórunnarstræti verður breikkuð, lagnir verða endurnýjaðar og jafnað undir malbik. Einnig verður skipt um jarðveg í stígum við Andapollinn og settar nýjar tröppur. Steyptur verður nýr kantsteinn og komið fyrir nýjum ljósastaurum. Smatals verða lagðar 1600 fermetrar af hellum og er kostnaður skv. tilboði u.þ.b. 27 milljónir króna. Verklok eru áætluð 15. október.
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
Undirhlíð 2 |
|
GV Gröfur hafa lokið við gröft og fyllingu undir sjö hæða fjölbýlishús sem SS byggir hyggst reisa við Undirhlíð 2 á Akureyri. Hér er um að ræða autt svæði sem löngum var talið óbyggilegt vegna dýptar á fastan botn. Með stórvirkum gröfum reyndist þó ekkert til fyrirstöðu og var grafið niður á 6 metra dýpi og fyllt með frostþolinni möl. Samtals er gert ráð fyrir að grafa 15.000 rúmmetra af mold vegna húss og bílakjallara.
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
Snjóflóðavarnargarður í Ólafsfirði |
|
GV Gröfur áttu lægsta tilboð í gerð 300 m langs snjóflóðavarnargarðs í brekkunni ofan við dvalarheimilið Hornbrekku í Ólafsfirði. Framkvæmdir hófust í ágúst og lýkur haustið 2010. Gert er ráð fyrir að hreinsa u.þ.b. 30.000 rúmmetra af moldarjarðvegi úr garðstæðinu og flytja 115.000 rúmmetra af fyllingarefni úr Héðinsfjarðargöngum í stoðfyllingu. Mold verður aftur ýtt upp í hliðar garðsins auk þess sem lagðir verða göngustígar og ræsi. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar |
|
Í lok maí hófust framkvæmdir við bílastæði og húsgrunna á nýju akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar, en klúbburinn hefur fengið úthlutað stórri lóð á túnum og í gömlum malarnámum neðan við Glerárbæinn sunnan Hlíðarfjallsvegar. Á svæðinu er gert ráð fyrir akstursgerði til kennslu, ásamt keppnis og æfingabrautum fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar, klúbbhús og viðgerðaraðstöðu. Í dag eru að hefjast framkvæmdir við kvartmílubraut. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Mótorhjólasafn á Krókeyri |
|
GV Gröfur hafa lokið jarðvegsskiptum vegna nýbyggingar Mótorhjólasafns Íslands sem til stendur að reisa á Krókeyri í minningu Heiðars Jóhannssonar. Safnbyggingin verður 800 fermetrar og mun hýsa fjölmörg gömul mótorhjól og muni sem tengjast íslenskri hjólamenningu, auk þess að sérstök deild verður tileinkuð Heiðari og munum úr eigu hans. Gert er ráð fyrir að safnið verði opnað árið 2010. Nánari upplýsingar um safnið er að finna á heimasíðu þess http://motorhjolasafn.is/
|
|
Upplýsingar og myndir |
|
Óðinsnes |
|
Framkvæmdum er að mestu lokið við lagningu Óðinsness sem tengir saman Krossanes við þjóðveg 1 hjá verslun BYKO. GV gröfur áttu lægsta tilboð í verkið rúmar 100 milljónir kr. Aðallega er um að ræða 25.000 m3 gröft, 35.000 m3 fyllingu og 3000 m3 klapparskeringu í götustæðinu. Jöfnun og sáning utan götu verður framkvæmt næsta vor. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Íþróttasvæði Þórs |
|
GV gröfur sjá um að skipta um jarðveg undir fyrirhugaðri stúkubyggingu á Þórssvæðinu. Áætlað magn fyllingar eru rúmir 4000 rúmmetrar. Aðalverktaki byggingarinnar er Hyrna ehf |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Bónus við Kjarnagötu |
|
GV Gröfur önnuðust jarðvegsskipti vegna nýbyggingar verslunarhúss við Kjarnagötu. Samtals voru fluttir 23.000 rúmmetrar af mold í hljóðmanir á golfvellinum og síðan fyllt með hátt í 20.000 rúmmetrum af möl í húsgrunninn og bílastæði á lóðinni. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Reykárhverfi í Eyjafjarðarsveit |
|
GV Gröfur áttu lægsta tilboð í lagningu 370 m götu í 4. áfanga Reykárhverfis í Eyjafjarðarsveit. Innifalið í verkinu er lagning frárennslis-, hitaveitu- og kaldavatnslagna. Verkinu á að ljúka í júní. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
Dagverðareyrarvegur |
|
Nú er lokið framkvæmdum við endurbyggingu Dagverðareyrarvegar milli Hlíðarbæjar og Hellulands alls 4,5 km. Lega vegarins var lagfærð, ræsi endurnýjuð, mold hreinsuð úr vegfláum, möl flutt í fyllingar og síðan lögð ný burðarlög á allan vegkaflann. Vegurinn verður síðan lagður tvöfaldri klæðningu. |
|
Upplýsingar og myndir |
|
|
|
GV Gröfur - Frostagötu 4a-b, 603 Akureyri - Sími: 462 5700, Fax: 462 5701 - gvgrofur@gvgrofur.is - www.gvgrofur.is