21.5.2006 - Tiltektadagur starfsmannafélags.
Laugardaginn 13 maí stóð starfsmannafélagið fyrir tiltektadegi á verkstæði og lóð fyrirtækisins. Mæting var mjög góð og gekk uppátækið vel fyrir sig og skilaði príðis árangri. Þegar tiltekt lauk bauð félagið starfsmönnum ásamt mökum og börnum í grill.
Svo skemmtilega vildi til að heilbrigðisfulltrúi var á ferð í fyrirtæki á svæðinu í vikunni á eftir og fengum við ágætis einkunn fyrir umgengni.
Til baka |