1.11.2005 - Hálfnað verk á Eskifirði
Framkvæmdir við seinni áfanga hitaveituframkvæmda á Eskifirði hafa ekki gengið sem skildi en verkið, sem er u.þ.b. hálfnað, er um þremur vikum á eftir áætlun. Helsta ástæða þess að verkið hefur tafist er hversu jarðvegur er slæmur í þeim hluta bæjarins sem við höfum verið að vinna í undanfarið. Þar er stórgrýtt og þær litlu vélar sem notaðar eru inn á lóðum ráða illa við aðstæður. Alls eru 16 menn frá G.V. gröfum að vinna við verkið og 5-8 menn á vegum undirverktaka.
Til baka |