26.10.2005 - Framkvæmdum á flugvelli lokið
G.V. Gröfur hafa lokið framkvæmdum á Akureyrarflugvelli en þar var um að ræða útboðsverk upp á rúmar 15 milljónir króna. Fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið en um var að ræða jarðvegsskipti, vinnu við að setja niður niðurföll og lagnir frá þeim og malbikun á um 5.000 fermetra svæði. Framkvæmdir gengu vel og var verkinu skilað á tilsettum tíma.
Til baka |