7.8.2009 - Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
Í lok maí hófust framkvæmdir við bílastæði og húsgrunna á nýju akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar, en klúbburinn hefur fengið úthlutað stórri lóð á túnum og í gömlum malarnámum neðan við Glerárbæinn sunnan Hlíðarfjallsvegar. Á svæðinu er gert ráð fyrir akstursgerði til kennslu, ásamt keppnis og æfingabrautum fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar, klúbbhús og viðgerðaraðstöðu. Í dag eru að hefjast framkvæmdir við kvartmílubraut.
Til baka |