11.2.2009 - Olíusparnaðarátak
GV Gröfur hafa veitt tveimur bílstjórum sínum viðurkenningu fyrir olíusparnað. Gerð var mæling á eyðslu malarflutningabíla fyrirtækisins fyrstu 4 mánuð ársins 2008 og borin saman við eyðslu þeirra á tímabilinu maí til desember. Mestum olíusparnaði náði Jón Harðarson 11% og í öðru sæti varð Sigrún Björk Bjarkadóttir með 5% sparnað. Samtals spöruðust rúmlega 6000 lítrar af díselolíu í átakinu sem bæði er gott framalag til umhverfismála og drjúgur rekstrarsparnaður.
Til baka |