28.8.2008 - Óðinsnes
Framkvæmdum er að mestu lokið við lagningu Óðinsness sem tengir saman Krossanes við þjóðveg 1 hjá verslun BYKO. GV gröfur áttu lægsta tilboð í verkið rúmar 100 milljónir kr. Aðallega er um að ræða 25.000 m3 gröft, 35.000 m3 fyllingu og 3000 m3 klapparskeringu í götustæðinu. Jöfnun og sáning utan götu verður framkvæmt næsta vor.
Til baka |