28.8.2008 - Dagverðareyrarvegur lagður bundnu slitlagi
Nú er lokið framkvæmdum við endurbyggingu Dagverðareyrarvegar milli Hlíðarbæjar og Hellulands alls 4,5 km. Lega vegarins var lagfærð, ræsi endurnýjuð, mold hreinsuð úr vegfláum, möl flutt í fyllingar og síðan lögð ný burðarlög á allan vegkaflann. Vegurinn verður síðan lagður tvöfaldri klæðningu.
Til baka |