7.1.2008 - Miðhúsabraut tekin í notkun
Umferð var hleypt á Miðhúsabraut milli Geislatúns og Mjólkursamlags 28. desember sl. Samkvæmt verksamningi munu GV gröfur ljúka frágangi vegkanta og svæða utan vegar fyrir 15. júní 2008 og Akureyrarbær áætlar að malbika götuna um svipað leyti. Framkvæmdir við verkið hafa gengið vel enda tíðarfar og aðstæður til framkvæmda verið hagstæðar.
Til baka |