27.11.2007 - Tækaflotinn eflist
Talsverð endurnýjun hefur verið gerð á tækjaflota GV grafa á árinu 2007. Fyrirtækið keypti í febrúar og mars tvær nýjar Komatsu PC210 og PC240 beltagröfur og einn MAN 26-480 dráttarbíl. Í apríl komu tveir Volvo A25D og A30D námubílar (búkollur). Í júní og júlí bættust í flotann tvær Case beltagröfur af gerðunum CX-210B og CX-290B, Case traktorsgrafa og Komatsu WA 470 hjólaskófla. Núna í nóvember voru teknir í notkuntveir nýir MAN 26-480 og 33-480 dráttarbílar og nýlegur Caterpillar 140 veghefill með búnaði sem tengist alstöð til landmælinga.
Til baka |