- Í framkvæmd
- Fyrri framkvæmdir

TIL SÖLU! Case cx 290 beltagrafa. Árg.2003. 32t.
GV Gröfur - Velkomin á heimasíðuna okkar
17.12.2009 - Afvötnun og endurbætur
GV Gröfur áttu lægsta tilboð í afvötnun og endurbætur á 6,6 km. löngun kafla á Eyjafjaraðrbraut vestri milli Litla-Hvamms og Hrafnagils. Endurvinna á skeringar og skurði með vegi , setja niður ný ræsi og lengja önnur. Breikka veginn þannig að hann nái allstaðar 8 m.breidd og lagfæra rofvörn á köflum þar sem Eyjafjarðará liggur að vegi. Áætluð verklok eru vorið 2010.

Fréttasafn


11.12.2009 - Fjölbýlishús við Undirhlíð
GV Gröfur hafa lokið við gröft og fyllingu undir sjö hæða fjölbýlishús sem SS byggir hyggst reisa við Undirhlíð 2 á Akureyri. Hér er um að ræða autt svæði sem löngum var talið óbyggilegt vegna dýptar á fastan botn. Með stórvirkum gröfum reyndist þó ekkert til fyrirstöðu og var grafið niður á 6 metra dýpi og fyllt með frostþolinni möl. Samtals er gert ráð fyrir að grafa 15.000 rúmmetra af mold vegna húss og bílakjallara.
Fréttasafn


31.08.2009 - Snjóflóðavarnargarður í Ólafsfirði
GV Gröfur hafa hafið framkvæmdir við snjóflóðavarnargarð ofan við Hornbrekku, heimili aldraðra í Ólafsfirði: Garðurinn verður 320 metrar að lengd og um 13 metrar á hæð þar sem hann er hæstur. Heildarefnismagn um 150 þúsund rúmmetrar. Jarðvegur af svæðinu verður að hluta notaður við landmótun en efni í garðinn sótt úr Héðinsfjarðargöngum í um 2,3 kílómetra fjarlægð frá garðinum. Auk varnagarðs ná framkvæmdirnar til þess að gera 276 metra langt ræsi undir varnargarðinn og 2 kílómetra af göngustígum. Verkinu skal vera að fullu lokið haustið 2010.
Fréttasafn


GV Gröfur - Frostagötu 4a-b, 603 Akureyri - Sími: 462 5700, Fax: 462 5701 - gvgrofur@gvgrofur.is - www.gvgrofur.is